Ný síða
Já ákvað að prófa eitthvað nýtt núna... check it out... http://blog.central.is/sander :)

þetta er svindl! ég get orðið ekkert borðað nammi lengur. Er búin að borða svona eins og eina lúku af m&m´s sem hún ástkær móðir mín kom með frá Ameríku og ég er að drepast í maganum! Þetta var líka svona á síðasta sunnudag (fyrir þá sem ekki vita þá eru sunnudagar eini nammidagurinn í vikunnni hjá mér). Auk þess sem maður fær alltaf ógeðslega fitubrák í góminn þegar maður borðar svona nammiógeð eitthvað sem kannski sýnir manni hvað nammi er í raun ógeðslegt.... ógesslega gott en samt líka ógeðslegt og alveg most definitely ekki gott fyrir líkamann. Ekki það að ég sé eitthvað á leiðinni að hætta að borða nammi en ég hef sko minnkað það geðveikt og með hverjum sunnudeginum sem líður þá minnkar það meir, þeas ég kem alltaf minna og minna nammi ofan í mig :( Með þessu áframhaldi verður maður hættur að borða nokkurt nammi í lok sumars!
On a nother note... er að spá í að halda Eurovisionpartý. What you think!!???
Ekki það að þessi dagur sé eitthvað öðruvísi en þeir sem hafa verið udanfarið. Dagurinn kemur til með að fara bara í lærdóm... jeijj. Vaknaði einhverra hluta vegna rétt fyrir klukkan sex í morgun og hef bara verið á fótum síðan. Stillti ekki neina klukku eða neitt heldur bara vaknaði ding! Fórum til mömmu að fá lánaða tölvuna hennar þar sem mín crashaði í gær... týpískt að svoleiðis þurfi akkurat að koma fyrir mig í prófunum!!!! Hún reyndar crashaði ekki heldur er hún batteríislaus og neitar að hlaða sig. Sem betur fer á mamma alveg eins tölvu þannig að ég gat notað batteríið úr þeirri tölvu til að geta flutt gögnin á milli tölvu otherwise i´d be screwed!! Get ekki beðið eftir því að vera búin í prófum!! Heyrumst seinna :)
Er búin í fyrsta prófinu og gekk alveg ágætlega svona miðað við að prófið var bara 1 stórt case! Já kennarinn hafði sagt að þetta yrði 50% case og svo rest bara einhverjar almennar spurningar en nei!! ákvað svo greinilega að nenna ekki að hafa neitt fyrir þessu og ljósritaði bara eitt case og spurningar.. helvítis letidurgur! Jæja nenni ekki að pæla í því lengur.... 1 down... 4 to go :)
Ætli það sé hættulegt að taka svona eins og klukkutíma af Bubbles núna!? Should I dare risk it in the case I forget to go. I´ll risk it but only for 45 minutes ok?!?
Var ég búin að segja ykkur hvað mig langar rosalega ekki að fara í þetta próf!! Alveg satt... ég lofa!!
Þoli ekki próf!!! já verð eiginlega bara að segja það. Fannst ég svo rosalega klár í gær þegar ég hætti að læra en núna þá bara man ég ekki shit! En þar sem ég er nú týpískur Íslendingur held ég áfram að söngla möntruna mína... þetta reddast!... þetta reddast! og vonandi gerir það það. I´ll let you know how it goes :s
og ég get ekki beðið. Á að vera að læra núna fyrir fyrsta prófið sem er einmitt á laugardaginn en ég bara nenni engan veginn að byrja á því. Svo hjálpar nú ekki til að ég er að drepast úr harðsperrum bæði í lærunum og líka í bakinu og bakharðsperrurnar eru sko bara frá því í morgun þannig að þið getið ímyndað ykkur hvernig ég verð á morgun!
Æi mér finnst eitthvað svo ótrúlega langt þangað til þetta sumarfrí kemur en samt eru þetta bara 12 dagar ef ég er að telja rétt.... síðasta prófið er sko um morguninn 10. maí. Held að sumarið verði ótrúlega frábært... útilegur, sumarbústaðir, útilegur, djamm, útilegur, djamm, djamm og útilegur... get ekki beðið eftir að það byrji. Og hvað þá það að maður á actually einhvern pening á sumrin! Get ekki beðið eftir því heldur þó svo að LÍN haldi að maður spari bara allar sumarpeningana sína þangað til um veturinn þá er ég ekki svoleiðis!
Er eitthvað svo ótrúlega óstressuð fyrir þessi próf núna og þá sérstaklega prófið á laugardaginn. Samt veit ég ekkert hvernig það verður. Veit bara að ég er búin að lesa allt efnið einu sinni yfir í vetur og fylgjast með í tímanum og svo er þetta gagnapróf og þar að auki bara 50% af einkunninni. Samt þarf maður örugglega að ná þessu prófi til að hitt gildi eitthvað sem er ótrúlegt svindl ef maður fékk kannski 10 í hinum 50% þá er lágmarkseinkunn til að ná 7,5! Ripoff! Jæja ég ætla að kíkja aðeins á þetta og ég lofa sjálfri mér að fara ekki í Bubbles fyrr en ég er búin að kíkja amk einu sinni yfir allar glósurnar og case-in. until later :)